VFFM1MF10 - Framreiðsla og matreiðsla
framreiðsla, hráefni, innkaup, matreiðsla
Einingafjöldi: 10
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Nemandinn fær kynningu á starfi framreiðslu- og matreiðslumannsins, réttindum og skyldum, forsendum starfsins og við hvaða aðstæður störfin fara fram. Nemandinn kynnist umfangi starfa og hve stór þáttur samskipti við gesti eru. Farið er yfir innkaup á hráefni til matargerðar og öðrum aðföngum, ásamt kynningu og verklegri þjálfun í helstu þáttum starfa í ferða- og matvælagreinum. Nemandinn þjálfast í notkun helstu áhalda við matargerð, fær þjálfun í að elda mat og reiða fram. Lögð er áhersla á persónulegt hreinlæti skv. HACCP skilgreiningum, samvinnu og samskiptahæfni.
Þekkingarviðmið
- grunnverkun á fiski, beinhreinsun og roðflettingu
- starfi framreiðslu- og matreiðslumanna og því umhverfi sem störfin fara fram í
- persónulegu hreinlæti og gildi þess í matvælagreinum
- hvað felst í störfum framreiðslu- og matreiðslumanna og möguleikum sem þau bjóða upp á til frekari starfa
- áhöldum og tækjum sem notuð eru í ferða- og matvælagreinunum og notkunarmöguleikum þeirra
- góðum siðum er varða umgengni við gesti og samstarfsfólk
- grunnþáttum í framreiðslu mismunandi rétta á veitingastað
- grunnþáttum í eldun einfaldra rétta í samræmi við verklagsreglur
- notkun uppskrifta og uppskriftabóka í matreiðslu
- innkaupum matvara og annarra aðfanga
Leikniviðmið
- leggja lín á borð og brjóta munnþurrkur
- vinna einföld verkefni í framreiðslu og matreiðslu
- umgangast tæki sem notuð eru í veitingasal, eldhúsum veitingastaða og kunna rétta notkun þeirra
- nota mismunandi hnífa við störf í matreiðslu
- matreiða súpur og sósur frá grunni
- raða mat á matarfat og diska eftir réttum faglegum hefðum
- binda upp kjöt fyrir steikingu
- umgangast gesti og samstarfsfólk við störf í matvælagreinum
- leita hagstæðra innkaupa á matvörum
- þekkja réttindi og skyldur starfsmanna á vinnustað
Hæfnisviðmið
- afla sér frekari þekkingar í ferða- og matvælagreinum
- vinna einföld grunnstörf í framreiðslu og matreiðslu
- skilja til hvers er ætlast í störfum framreiðslu- og matreiðslufólks
- vinna með helstu áhöld og tæki sem notuð eru við störf í framreiðslu og matreiðslu
- nýta þekkingu sína til að reikna út hráefnismagn og gera hagkvæm innkaup
- gæta að eigin hreinlæti og því hreinlæti sem kröfur eru gerðar um í matvælagreinum, (HACCP)
- skilja hlutverk fyrirtækja gagnvart starfsmönnum m.t.t. kjaramála