ÍÞRG2ÞS03 - Grunnþjálfun íþrótta
liðleiki, snerpa, styrkur, þol
Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: engar
Þrep: 2
Forkröfur: engar
Í áfanganum verður farið yfir grunnþjálfun íþrótta. Með grunnþjálfun er átt við eiginleikana þol, styrk, liðleika, snerpu/hraða og samhæfingu. Notaðar verða mismunandi íþróttagreinar til þess að sýna hvernig þessir eiginleikar eru þjálfaðir og hvernig við þjálfum þá hjá börnum og unglingum. Nemandinn þjálfast í að leggja upp æfingar fyrir mismunandi aldurshópa. Stefnt er að því að nemandinn öðlist ákveðna grunnfærni og nái að auka líkamlega getu sína. Nemandinn tekur þátt í mælingum í byrjun og lok annar sem meta vissa þætti s.s. þol, styrk og liðleika.
Þekkingarviðmið
- fjölbreyttum grunnþjálfunaræfingum fyrir mismunandi aldurshópa
- því hvernig beita má leikjum í þjálfun
- mismunandi þjálfunaraðferðum
- sameiginlegum þáttum og áherslumun milli íþróttagreina
- mismunandi aðferðum til að mæla ýmsa þjálfunarþætti t.d. þol og styrk
Leikniviðmið
- stunda líkams- og heilsurækt
- gera styrkjandi og mótandi æfingar fyrir helstu vöðva og liðamót líkamans
- beita eigin áætlun og fylgja henni
- greina líkamsbeitingu og vinnutækni og veita ráðleggingar
Hæfnisviðmið
- flétta hreyfingu inn í daglegt líf til að viðhalda og bæta almenna líkamshreysti
- leysa verkefni sem snúa að skipulagningu eigin þjálfunar
- nýta æfingar og leiki til að viðhalda og bæta samskipti
- greina frá afstöðu sinni til heilbrigðs lífsstíls
- glíma við fjölbreytt verkefni sem snúa að alhliða hreyfingu, líkams- og heilsurækt
- leysa af hendi verkefni, æfingar og leiki sem viðhalda og bæta almenna líkamshreysti