RALA1RT03 - Raflagnir 2
rofabúnaður, tengingar
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: RALA1RÖ03
Þrep: 1
Forkröfur: RALA1RÖ03
Í þessum áfanga er fjallað um framleiðslu raforku og hvernig henni er dreift um sveitir og bæi, allt að neysluveitu notanda. Lögð er áhersla á öryggismál í tengslum við umgengni við rafmagn og hættur útskýrðar í máli og myndum. Nemandinn fær æfingu í að leggja lagnir í tiltekið lagnarými þar sem hann fylgir ákvæðum reglugerðar og stöðlum um raforkuvirki. Fjallað er enn frekar um raflagnaefni, efnisfræði rafbúnaðar og annan búnað í minni neysluveitum.
Þekkingarviðmið
- raforkuframleiðslu og dreifikerfi
- öryggis- og reglugerðarákvæðum er varða raflagnir og varnaraðferðir
- einföldum kapallögnum
- einföldum röraraflögnum og ídrætti víra
- helstu raflagnatáknum
- algengustu heimilistækjum og orkuþörf þeirra
Leikniviðmið
- tengja ýmsa rofa og búnað sem tengjast minni veitum
- forðast hættur bæði í vinnu við rafmagn og umgengni á vinnustöðum
- draga leiðara í rör
- skipuleggja starf sitt og beita faglegum vinnubrögðum
- tengja helstu rofa og tengla í minni veitum
Hæfnisviðmið
- sjá hættur sem leynast við vinnu með rafmagn og verkfæri
- skilja orkunotkun í heimahúsum og velja búnað í samræmi við hana
- velja raflagnaefni í minni veitur
- leggja raflagnir og tengja í minni veitur