RALA2FT03 - Raflagnir 4
lagnir fyrir fjarskiptakerfi, öryggiskerfi og tölvukerfi
Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: RALA2TM03
Þrep: 2
Forkröfur: RALA2TM03
Í þessum áfanga er lögð áhersla á tengingar og efnisval á meðalstórum boðskiptakerfum s.s. tölvukerfi, símalagnir, dyrasímakerfi, loftnetskerfi og ljósleiðara. Einnig verða tengd öryggis- og brunakerfi. Gerðar verða mælingar og farið í bilanaleit í þessum kerfum og hvernig gert er við bilanir. Áfanginn er verklegur og kenndur samhliða VSME2LÖ05
Þekkingarviðmið
- lagningu bruna- og boðskiptalagna
- kröfum um frágang á köplum í rennum, bökkum og stigum
- uppröðun í tengiskápa
- mismunandi gerðum kapla eftir aðstæðum
Leikniviðmið
- tengja stjórnstöðvar brunakerfa
- leggja og tengja tölvu, síma, hljóð, mynd og loftnetslagnir á fagmannlegan hátt
- setja upp og tengja mismunandi brunakerfi
- finna út bilanir og gera við þær
Hæfnisviðmið
- tengja boðskiptalagnir við krosstengibretti (patcpanil) og annan endabúnað
- tengja loftnetskerfi og gera mælingarskýrslu
- tengja dyrasímakerfi og mæla út bilanir
- tengja boðskiptalagnir og krosstengibretti
- gera mælingarskýrslu og útlitsmynd af skáp
- velja búnað í ljósleiðarakerfi og umgangast búnaðinn af þekkingu
- ganga frá lögnum að brunakerfum og viðvörunarkerfum