RAMV1HL05 - Rafmagnsfræði 1
hugtök, lögmál rafmagnsfræðinnar, mælingar jafnstraums
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Farið er í helstu hugtök og lögmál rafmagnsfræði jafnstraums. Lögð er áhersla á að nemandinn læri að nýta sér þessi lögmál við reikninga og gera prófanir á þeim með mælingum í jafnstraumsrásum. Farið er yfir mismunandi gerðir spennugjafa auk þess sem nemandinn á að þekkja helstu teiknitákn í einföldum jafnstraumsrásum.
Þekkingarviðmið
- helstu hugtökum s.s. straumur, spenna, viðnám
- teiknitáknum fyrir mæla, spennugjafa og ýmsar gerðir viðnáma
- helstu lögmálum s.s. Ohms-, Kirkhhoffs- og afllögmáli
- helstu forskeytum eininga s.s. milli, míkró, nanó o.s.frv.
Leikniviðmið
- framkvæma reikninga í einföldum jafnstraumsrásum
- teikna einfaldar jafnstraumsrásir
- nota fjölsviðsmæli
- tengja og reikna einfaldar jafnstraumsrásir
Hæfnisviðmið
- tengja upp einfaldar jafnstraumsrásir eftir teikningu og framkvæma á þeim mælingar
- sannprófa niðurstöður með notkun lögmála og/eða mælinga