RAMV2RS05 - Rafmagnsfræði 3
RLC rásir, síur
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: RAMV2ÞS05
Þrep: 2
Forkröfur: RAMV2ÞS05
Lögð er áhersla á að nemandinn fái þjálfun í reikningum á RLC – rásum varðandi riðstraumsviðnám, samviðnám, spennuföll og fasvik bæði í hliðtengdum og raðtengdum rásum. Nemandinn lærir um desebelútreikninga og notkun þeirra, helstu síur og hvernig hægt er að búa þær til úr RLC-rásum og framkvæma reikninga á þeim. Auk þess kynnist nemandinn umhverfisháðum viðnámum og táknum fyrir þau. Nemandinn framkvæmir einnig mælingar á síum og öðrum RLC – rásum bæði með hjálp mælitækja, sveiflusjár og hermiforrits.
Þekkingarviðmið
- hvernig riðstraumsrásir með spólum og þéttum hegða sér við breytilega tíðni
- virkni helstu sía
- virkni umhverfisháðra viðnáma
- desebel útreikningum og logarithmiskum kvarða
Leikniviðmið
- framkvæma alla helstu reikninga í rað- og hliðtengdum RLC – rásum
- segja til um hvernig viðám og fasvik svona rása breytist með tíðni
- tengingum og mælingar á RLC – rásum
- útreikningi/hönnun á einföldum síum
Hæfnisviðmið
- tengja eftir teikningu og mæla í RLC – rásum bæði raðtengdum og hliðtengdum
- hanna einfaldar síur með þéttum viðnámum og spólum og gera á þeim mælingar
- gera mælingar á RLC – rásum yfir ákveðið tíðnisvið
- setja niðurstöður fram í desebelum og í logaritmiskum kvarða
- nýta sér hermiforrit til mælinga á rásum
- setja niðurstöður mælinga fram í skýrsluformi