RATÆ2DT05 - Rafeindatækni 1
afriðun, díóður, hálfleiðarar, transistorar
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: RAMV2ÞS05
Þrep: 2
Forkröfur: RAMV2ÞS05
Í áfanganum er fjallað um hálfleiðara, sérstaklega helstu gerðir af díóðum (tvistum), virkni þeirra og notkunarmöguleika. Farið er í hvernig nota má díóður í afriðun og kenndar nokkrar leiðir til að umbreyta AC í DC. Einnig er farið í grunnvirkni transistors og hvernig hann er forspenntur og farið í DC- reikninga transistors. Gert er ráð fyrir að nemandinn læri einnig á helstu mælitæki svo sem fjölsviðsmæli og sveiflusjá auk þess að nota hermiforrit við mælingar á rásum.
Þekkingarviðmið
- teiknitáknum díóða og Bjt transistora
- virkni díóða og Bjt transistora
- helstu gerðum afriðla og virkni þeirra
- notkun íhluta s.s. díóða, Bjt transistora og afriðla
Leikniviðmið
- reikna einfaldar rásir með díóðum og transistorum
- reikna út DC spennu á mismunandi afriðlum
- teikna einfaldar rafeindarásir
- nota helstu mælitæki sem notuð eru í rafeindatækni
- nota hermiforrit til mælinga á rafeindarásum
Hæfnisviðmið
- hanna einfaldar rafeindarásir með díóðum og transistorum og gera mælingar á þeim
- skila af sér skýrslu um mælingar á rásum
- framkvæma mælingar til að ganga úr skugga um hvort íhlutir eru í lagi eða ekki