TNTV2ST03 - Tölvur og net 2
Karnaugh-kort, kóðar, samrásir, teljarar
Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: TNTV1TN03
Þrep: 2
Forkröfur: TNTV1TN03
Nemandinn lærir hvernig má einfalda bólskar jöfnur með hjálp Karnaugh-korta. Nemandinn kynnist samrásum og virkni þeirra. Smárásir sem skoðaðar verða eru m.a.: samlagningarrás, samanburðarrás, kóðabreytir, línuveljari, teljari og hliðrunarsérminni. Virkni lása og vipna er krufin svo og samstilltir og ósamstilltir teljarar. Lögð skal áhersla á notkun hermiforrita við prófun rásana. Þá er lögð áhersla á að nemandinn fái innsýn í forritanlega örgjörva og hvernig hægt er að forrita þá og nota t.d í skynjararásum ýmiskonar.
Þekkingarviðmið
- notkun bólskrar algebru og sannleikstaflna við skilgreiningu á virkni rökrása
- notkun Karnaugh-korta til einföldunar á rökrásum
- virkni helstu samrása
Leikniviðmið
- nota bólska-algbebru til einföldunar á rökrásum
- nota Karnaugh-kort til einföldunar á rökrásum
- tengja samrás í hermiforriti og prófa hana
- forrita litla örgjörva
Hæfnisviðmið
- skilja virkni helstu rökrása
- nýta mælitæki við að prófa rökrásir
- nýta tölvuhermiforrit til prófunar á rökrásum
- forrita örgjörva eftir ákveðinni forskrift