VGRV2PR03 - Tækjasmíði 2
notkun rásahermiforrita, prentplötusmíði, samsetning rafeindatækja
Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: VGRV2RS03
Þrep: 2
Forkröfur: VGRV2RS03
Í áfanganum lærir nemandinn að beita rásahermiforritum til að teikna og prófa einfaldar rafeindarásir. Nemandinn gerir jafnframt allar mælingar í slíkum forritum, smíðar rás, prentplötu og setur rásirnar saman og kannar virkni hennar. Unnið er að smíði stærri rafeindatækja.
Þekkingarviðmið
- virkni rásahermiforrita
- virkni helstu íhluta
- hvernig koparprentrásir eru ætaðar
- forritum til að teikna prentrásir
- forritum sem teikna rafeindarásir
Leikniviðmið
- vinna með og prófa rásir í rásahermum
- snúa skematískum teikningum yfir á prent
- mæla og prófa rásir bæði í rásahermi og raunrás
- ganga frá rafeindabúnaði í tækjakassa
Hæfnisviðmið
- teikna rafeindarás í rásahermi og láta rásina virka
- mæla spennur, strauma og viðnám í rásahermi
- hanna prent út frá rásateikningu
- smíða rás með etching aðferð
- prófa og staðfesta virkni í raunrás