VGRV3TP03 - Tækjasmíði 3
gerð rásarteikninga, smíði flóknari tækja, tvíhliða prentplötur
Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Forkröfur: VGRV2PR03
Þrep: 3
Forkröfur: VGRV2PR03
Í áfanganum fær nemandinn þjálfun í að beita rásahermiforritum og teikniforritum til að smíða tvíhliða prentplötu fyrir tiltekna rafeindarás. Nemandinn hýsir rásina í kassa úr áli eða sambærilegu efni. Lögð er áhersla á að nemandinn læri um fljótandi jörð, öðlist leikni í smíði rafeindarása, geti byggt kassa til skermingar úr áli eða blikki allt eftir því sem hentar.
Þekkingarviðmið
- virkni transistora
- virkni díóða
- virkni transistora sem rofa
- virkni transistora sem magnara
- virkni rafeindarása fyrir hliðræna eða stafræna virkni
- öryggisreglum er varða jarðbindingar
- öryggisreglum er varða helstu áhöld til málmsmíða
Leikniviðmið
- setja upp snyrtilega rafeindarás
- mæla rafeindarásir með AVO mæli
- reikna strauma út frá mælingum
- reikna mögnun út frá mælingum
Hæfnisviðmið
- teikna rafeindarás í rásahermi og láta hana virka
- mæla spennur, strauma og viðnám í rásahermi
- mæla Vpp gildi, tíðnir, tíma, ris og falltíma í rásahermi
- hanna prent út frá rásateikningu
- smíða rás með etching aðferð
- færa teikningar milli forrita til að laga að fræsara
- smíða prentrás með fræsara
- prófa og staðfesta virkni í raunrás
- koma rafeindarás fyrir í kassa og tryggja virkni hennar