GRUN1FF04 - Undirstöðuatriði í teiknifræðum
Fallmyndun og fríhendisteikning
Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemandinn öðlist almenna undirstöðuþekkingu og þjálfun í teiknifræðum. Fjallað er um fallmyndun, ásmyndun og fríhendisteikningu. Nemandinn öðlist færni í meðferð og notkun mæli- og teikniáhalda, myndrænni vinnu með viðfangsefni starfsgreina. Að auki hlýtur nemandinn grunnþjálfun í gerð vinnuteikninga og þrívíðra rissteikninga ásamt lestri teikninga.
Þekkingarviðmið
- mismunandi teikniaðferðum, s.s. fríhendisteikningu og fallmyndun
- upplýsingamiðlun með tæknilegum teikningum
- meðferð og notkun teikni- og mæliáhalda
- tvívíðum og þrívíðum vinnuteikningum
- lestri teikninga
- uppsetningu teikninga á vinnublað, áritun og frágangi þeirra
Leikniviðmið
- lesa hornréttar fallmyndir
- lesa sneiðmyndir af einföldum hlutum
- teikna einfaldar vinnuteikningar með fallmyndun og nota við það viðeigandi teikniáhöld
- lesa og skilja einfaldar tæknilegar vinnuteikningar og einfaldar þrívíðar teikningar
- teikna ásmyndir af einföldum hlutum
- teikna fríhendis
Hæfnisviðmið
- skipuleggja vinnublað, árita og ganga frá einföldum teikningu
- miðla upplýsingum á skilvirkan hátt
- málsetja einfaldar vinnuteikningar eftir viðeigandi reglum, venjum og stöðlum í mismunandi mælikvörðum
- nýta sér teiknikunnáttu í starfi