VÉLS1GV05 - Vélstjórn 1
Grunnþættir véla og vélkerfa
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Í áfanganum öðlast nemandinn þekkingu á uppbyggingu og virkni mismunandi
vélagerða, þar sem áhersla er lögð á virkni, eiginleika og notkun bulluvéla. Einnig er farið yfir íhluti og einingar sem brunavél samanstendur af og hlutverk þeirra. Þá er fjallað um véla- og lagnakerfi sem þjóna brunavélum. Nemandinn þjálfast í notkun véla og vélakerfa, og lögð er áhersla á að hann sé fær um að þjóna og stjórna vélbúnaði í minni skipum. Farið er yfir öryggismál, umgengni um vélar og verkstæði ásamt hættum sem stafa af vélum og vélbúnaði.
Þekkingarviðmið
- vinnuhring dísil- og Ottómótors
- flokkun aflvéla eftir gerð, uppbyggingu og eldsneyti
- grundvallarhugmyndum að baki bulluvélinni, byggingu hennar og helstu íhlutum
- mismunandi uppbyggingu, notkun og eiginleikum hraðgengra og hæggengra bulluvéla
- mismunandi aðstreymi eldsneytis og lofts í Ottóvél og dísilvél
- þeim kerfum sem þjóna vélum skipa, hlutverki þeirra og uppbyggingu í minni skipum
- kæliþörf brunavéla
- uppbyggingu á eldsneytisdælum og vinnumáta þeirra
- ræsingu bulluvéla, þ.m.t. mismunandi ræsiloftskerfa véla og þeim reglum sem um þau kerfi gilda
- umhirðu véla og búnaðar í vélarrúmi
Leikniviðmið
- nafngreina helstu íhluti vélar og lýsa hlutverki þeirra
- lesa úr vélateikningum
- nota helstu handverkfæri á réttan hátt
- ganga um vélar og verkstæði með tilliti til hreinlætis og öryggis
- undirbúa dísilvél fyrir gangsetningu og gangsetja hana
- ganga frá vél og vélarrúmi eftir stöðvun og gera vélarrúm frostklárt
Hæfnisviðmið
- teikna upp vinnuhring tvígengis og fjórgengis dísil- og Ottóvéla
- rekja og teikna upp helstu vélakerfi
- stunda vinnu á vélaverkstæði m.t.t. umgengni og öryggismála
- undirbúa vél fyrir ræsingu og ræsa hana
- útskýra bæði ytri og innri kælibúnað véla