NÁSS1ÁS05 - Kynnig á list- og verknámi
sjálfsvitund, áhugasvið
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Í áfanganum gefst nemandanum kostur á að kynnast list- eða verknámi sem hann hefur áhuga á. Nemandinn velur sér faggrein úr því list- eða verknámi sem er í boði í skólanum hverju sinni og sinnir því undir handleiðslu faggreinakennara. Lögð er áhersla á að efla námsvitund nemandans, að hann finni styrkleika sína, öðlist sjálfstraust til að sinna ólíkum verkefnum og finni áhugasvið sitt í gegnum fjölbreytt nám.
Þekkingarviðmið
- sjálfsmynd sinni og hvernig hann getur best nýtt sína hæfileika
- eigin hæfni, styrkleikum og áhugasviði
- mikilvægi markmiðasetningar
Leikniviðmið
- bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum í því vinnuumhverfi sem hann er staddur í hverju sinni
- greina styrkleika sína og tengja áhugasvið sitt við nám
- setja sig í spor annarra, sýna umburðarlyndi og samhygð
- beita árangursríkum námsaðferðum og setja sér raunhæf markmið
- setja sér raunhæf markmið
- beita skipulögðum vinnubrögðum í námi
- beita lýðræðislegum vinnubrögðum í samvinnu við aðra
Hæfnisviðmið
- stunda árangursríkt nám á framhaldskólastigi og taka ábyrgð á eigin námi
- taka afstöðu til áframhaldandi náms við skólann
- bæta eigin vinnubrögð og samstarf við aðra
- sýna frumkvæði í að rækta sköpunargáfu sína og aðlögunarhæfni í verkefnum innan og utan skóla