SASK2SS05(AV) - Samskipti
samskipti, sjálfsstyrking, tjáskiptareglur
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: engar
Þrep: 2
Forkröfur: engar
Í áfanganum er fjallað um mikilvægi góðra samskipta milli manna. Fjallað er um mikilvægi samkenndar, jafnréttis, mannvirðingar og mannréttinda í samskiptum. Farið er í eflandi samskipti sem byggja á virðingu og fordómaleysi á jafnréttisgrundvelli. Fjallað er um áhrif ólíkra menningarheima og tjáskiptareglna á mótun samskipta einstaklinga, hópa og þjóða. Farið er í áhrif sjálfsmyndar og sjálfstrausts á samskipti og hvað heilbrigðisstarfsmenn þurfa að hafa í huga í samskiptum við skjólstæðinga, samstarfsfólk og aðstandendur.
Þekkingarviðmið
- mikilvægi góðra samskipta
- mikilvægi eflandi samskipta, sem byggja á virðingu, samkennd, fordómaleysi og jafnrétti
- áhrifum ólíkra menningarheima á samskipti
- áhrifum sjálfsmyndar og sjálfskilnings á samskipti
- aðstæðum sem geta haft áhrif á samskipti
- hvernig heilbrigðisstarfsmenn geta notað samskipti á árangursríkan hátt
Leikniviðmið
- setja sig í spor annarra í samskiptum
- sýna samkennd, virðingu og fordómaleysi í samskiptum
- nota samskiptareglur og viðtalstækni á áhrifaríkan hátt í samskiptum
- læra af eigin samskiptum og annarra
Hæfnisviðmið
- eiga góð samskipti við annað fólk án tillits til stöðu, aldurs eða þjóðernis
- eiga farsæl samskipti við skjólstæðinga og samstarfsfólk í starfi
- leysa samskiptaerfiðleika af þekkingu og virðingu fyrir sjónarmiðum allra hlutaðeigandi