STAF3ÞJ27 - Starfsþjálfun sjúkraliðanema
þjálfun á vinnsustað
Einingafjöldi: 27
Þrep: 3
Forkröfur: VINN3GH08
Þrep: 3
Forkröfur: VINN3GH08
Í áfanganum vinnur nemandinn undir handleiðslu sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga á heilbrigðisstofnun. Nemandinn öðlast hæfni og sjálfstæði í störfum sjúkraliða og við lok námsins skal nemandinn búa yfir almennri og sérhæfðri þekkingu, leikni og hæfni til þess að vinna hjúkrunar- og umönnunarstörf á faglegan hátt. Heimilt er að skipta starfsþjálfun niður í tvö til þrjú tímabil, en þjálfunin skal þó vera samfelld á hverju tímabili og lágmarksvinnuhlutfall ekki fara undir 60%. Nemandinn skal áður en hann fer í starfsþjálfun fá samþykki skóla fyrir námsstaðnum og skrifa undir námssamning ásamt fulltrúa skóla og ábyrgðaraðila á námsstað. Að loknu námi í VINN2LS08 er nemandanum heimilt að ljúka fimm vikum af starfsþjálfuninni. Nemandinn skal alfarið fylgja þeim reglum sem viðkomandi heilbrigðisstofnun setur sínu starfsfólki.
Þekkingarviðmið
- faglegum grunni hjúkrunarstarfa
- mikilvægi samskipta og samvinnu í störfum sjúkraliða
- vinnuumhverfi og starfssviði sjúkraliða
- siðareglum sjúkraliða
- lögum og reglugerðum sem tengjast störfum sjúkraliða
Leikniviðmið
- beita faglegum vinnubrögðum í sjúkraliðastarfinu
- taka þátt í þverfaglegu samstarfi
- starfa eftir siðareglum, sýna siðferðisvitund, fordómaleysi, umburðarlyndi og víðsýni í störfum sínum
- vinna eftir gæðaviðmiðum heilbrigðisstofnana
- beita hjúkrunarmeðferðum samkvæmt hjúkrunaráætlun hverju sinni
- beita innsæi, gagnrýninni og skapandi hugsun við lausn hjúkrunarviðfangsefna
Hæfnisviðmið
- yfirfæra og samþætta fræðilega þekkingu að sjúkraliðastarfinu
- vinna sjálfstætt og bregðast við margvíslegum aðstæðum í sjúkraliðastarfinu
- rökstyðja og ígrunda þær hjúkrunarmeðferðir sem hann framkvæmir samkvæmt hjúkrunaráætlun hverju sinni
- sýna hæfni í samskiptum við ólíka einstaklinga með ólíkar þarfir
- tileinka sér nýjungar og þróa sig í starfi
- nýta samskiptahæfni við margvíslegar aðstæður