BVVE1ÁV02 - Vinnuvernd og verkfæri á verkstæðum
umgengni, verkfæri, áhöld
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: Að minnsta kosti 5 einingar í vélfræði/vélstjórn
Þrep: 1
Forkröfur: Að minnsta kosti 5 einingar í vélfræði/vélstjórn
Farið yfir vinnuverndarmál, svo sem reglur um heilbrigði, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, ýmsar hættur í störfum og örugg vinnubrögð. Skoðuð áhöld og verkfæri sem notuð eru á ökutækjaverkstæðum. Skoðuð sérverkfæri og áhöld til sérgreindra verka. Farið yfir notkunarsvið og vinnuverndaratriði sem tengjast ýmsum verkstæðisbúnaði, einkum málmsuðutækjum, lyftitækjum, þrýstilofts- og rafknúnum tækjum og aflverkfærum. Fjallað um hættuleg efni og eitrunarhættu og bruna- og sprengihætta. Mikilvægi þess að íhuga hættur og þekkja viðbrögð við óhöppum. Hreinlæti og meðferð úrgangs og spilliefna. Áhersla á fagmennsku við alla þætti sem snerta starfið. Farið yfir helstu gerðir vökva í vélbúnaði: olíur, glussa, kælivökva, bremsuvökva osfrv. Fjallað um staðla, hugtök og eiginleika. Áhersla á mikilvægi þess að velja rétta tegund og afleiðingar mistaka í vali.
Þekkingarviðmið
- almennum og sérstökum hættum sem fylgja störfum á ökutækjaverkstæðum og valdið geta slysum, sjúkdómum og skemmdum á verðmætum
- persónulegum öryggisbúnaði og reglum um notkun hans
- öryggis- og hlífðarbúnaði sem er á tækjum eða verkfærum
- helstu verkfærum og sérverkfærum sem notuð eru á ökutækjaverkstæðum, notkun þeirra og umhirðu
- algengum skrúffestingum og lyklastærðum
- helstu gerðum og eiginleikum vökva sem notaður er í ökutækjum
Leikniviðmið
- beita áhöldum og verkfærum sem eru til staðar á ökutækjaverkstæðum
- nota persónulegan öryggisbúnað
- nota hugtök sem tengjast greininni
- beita verkstæðisbúnaði s.s. málmsuðutækjum, aflverkfærum og ýmsum léttitækjum
Hæfnisviðmið
- útskýra hugtakið fagmennska
- útskýra reglur um hreinlæti og meðferð úrgangs og spilliefna
- útskýra samábyrgð allra á vinnustaðnum um örugg vinnubrögð
- meta ástand almennra áhalda og verkfæra sem notuð eru á ökutækjaverkstæðum
- lýsa meðferð, hirðu og beitingu almennra áhalda og verkfæra sem notuð eru á verkstæðum
- lýsa notkun og meðferð verkstæðisbúnaðar: málmsuðutækja, lyftitækja, þrýstilofts- og rafknúinna tækja, aflverkfæra og ýmissa léttitækja
- velja rétta tegund olíu, demparavökva, bremsuvökva osfrv. í það tæki sem unnið er við hverju sinni.