BVHR2VH05 - Hreyflar, smurkerfi, kælikerfi
hreyflar, kælikerfi, smurkerfi, ventlabúnaður
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Þrep: 2
Farið er yfir vélfræði brunahreyfla og flokkun þeirra eftir ýmsum viðmiðunum: vinnureglu, gasreglu, ventlatíma, vélareikningi, efnasamsetningu afgass, byggingarlagi hreyfla og vélahluta. Áhersla er lögð á strokkstykki, strokklok, sveifarbúnað, þ.m.t. stimpla, ventlabúnað, kælikerfi og smurkerfi. Farið er yfir þéttingar hreyfla og skrúffestingar. Áhersla er lögð á hreinlæti í umgengni, meðhöndlun véla og vélahluta. Nákvæmni í skoðun, mælingum á ástandi hreyfils og íhlutum hans. Farið yfir hvernig meta skuli ástand eftirfarandi: þéttleika strokka hreyfilsins, m.a. með þjöppumælingu, hreyfibúnað ventla, þ.e. vippur, kambás, kambásdrif, strokklok, blokk, ventla, ventlagorma og tilheyrandi. Kynnt er notkun hlustunartækja við greiningu bilana og gerðar verklegar æfingar á lausum strokklokum og íhlutum. Strokklok er tekið af hreyfli, ástand þess metið, framkvæmd viðeigandi viðgerð og strokklokið sett aftur á hreyfilinn. Fjallað er um nauðsyn hreinlætis við vélaviðgerðir. Áhersla er lögð á mælingar ástands íhluta, sjónskoðun, eðli og ástandi skrúffestinga. Upprifjun á efnisfræði hreyfla og tengds búnaðar. Farið er yfir smurkort/olíuleiðbeiningar, losun olíu af forðageymum, áfyllingar, skipt um síur og mældur smurolíuþrýstingur. Smurolíudælur, olíuleiðslur og olíugangar yfirfarnir. Farið er í hvar helst er hætta á olíuleka eða olíueyðslu. Tæming og áfylling kælivökva. Gerðar prófanir á kælikerfi og miðstöð: hitastjórnun, þrýstiþol, leki, frostþol. Skipt um kæli, kæliviftu, viftureim, kælivökvadælu, hitaliða og slöngur. Meðhöndlun á úrgangsvökvum, þ.e. olíu og kælivökva. Skýrðar eru ástæður þess að olía geti verið í vatni eða vatn í olíu. Farið er yfir virkni loftfrískunarkerfa (AC) og sérstaka mengunarhættu af kælimiðli þessara kerfa (reglugerð 834/2010). Æfð vinnubrögð við að lyfta ökutæki og vinna undir ökutæki þ.m.t. öryggisatriði við vinnu undir ökutæki á lyftu.
Þekkingarviðmið
- helstu gerðum brunahreyfla í ökutækjum og byggingarlagi þeirra
- vinnureglu brunahreyfla, gasreglu brunahreyfla og ventlatíma
- nöfnum og hlutverkum einstakra vélahluta og íhluta
- helstu gerðum skrúfukerfa: gengja, lykilgrips og teygjubolta
- mæliatriðum sem varða ventlabúnað hreyfla og strokkloks
Leikniviðmið
- þjöppumæla strokka
- endurnýja (skera) ventla og ventilsæti
- taka af/setja á strokklok hreyfils
- skipta um olíu og síur
- mæla smurþrýsting
- prófa kælikerfi
- skipta um kælivökvadælu, hitaliða, slöngur og kæli
- tengja prófunartæki fyrir loftfrískunarkerfi (AC) og lesa af niðurstöðum
Hæfnisviðmið
- lýsa tilgangi einstakra vélahluta og íhluta
- lýsa ventlatíma og tímun kambása
- lýsa virkni hreyfilsins og tengds búnaðar sem heildar
- meta ástand strokka hreyfilsins, hreyfibúnað ventlanna, þ.e. vippur, kambása og kambásdrif, strokklok og blokk (þéttifleti og skrúfganga), ventlagorma og tilheyrandi
- lýsa virkni loftfrískunarkerfa (AC), benda á íhluti kerfisins og lýst hlutverki þeirra
- yfirfara og prófa miðstöð