HJÚK1AG05(AV) - Almenn hjúkrun
Almennur, grunnur
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Að hafa lokið 1. önn í sjúkraliðanámi
Þrep: 1
Forkröfur: Að hafa lokið 1. önn í sjúkraliðanámi
Í áfanganum er fjallað um sögu og hugmyndafræði hjúkrunar. Kynnt eru lög og reglugerðir sem lúta að heilbrigðisþjónustu á Íslandi, siðareglur sjúkraliða og hvað felst í hugtakinu fagmennska. Fjallað er um umhyggjuhugtakið, andlegar, líkamlegar og félagslegar þarfir skjólstæðinga. Fjallað er um þætti sem hafa áhrif á líðan og breytingar á líkamsstarfsemi. Auk þess er fjallað um umönnum sjúklinga og þætti sem hafa áhrif á sjálfsumönnun. Farið er í hjúkrunargreiningar og skráningu hjúkrunar.
Þekkingarviðmið
- sögu og þróun hjúkrunar og þeirri hugmyndafræði sem hjúkrunarstörf byggjast á
- helstu skipulagsformum hjúkrunar
- umhyggjuhugtakinu
- siðareglum sjúkraliða
- réttindum skjólstæðinga skv. lögum
- mikilvægi skráninga og athugana í hjúkrun
- grunnþörfum mannsins og frávikum frá þeim
- mikilvægi svefns og hvíldar
- áhrifum verkja á skjólstæðing
- fylgikvillum rúmlegunnar
Leikniviðmið
- skrá niðurstöður athugana og mælinga á viðurkenndan hátt
- fylgja leiðbeiningum í þeim tilgangi að bæta líðan skjólstæðings
- fyrirbyggja fylgikvilla rúmlegunnar
- sýna faglega umhyggju
- taka á móti skjólstæðingi á faglegan hátt
- nota hjúkrunargreiningar og vinna eftir þeim
Hæfnisviðmið
- tengja sögu og hugmyndafræði hjúkrunar við hjúkrunarstörf
- útskýra tengsl andlegs, líkamlegs og félagslegs ástands skjólstæðings við hjúkrunarþarfir hans
- gera grein fyrir ábyrgð sjúkraliða í hjúkrun
- eiga jákvæð og uppbyggileg samskipti og samstarf við skjólstæðinga og samstarfsfólk
- sýna fagmennsku í orði og verki
- rökstyðja mikilvægi þagnarskyldu og trúnaðar í samskiptum við skjólstæðing
- útskýra mikilvægi þess að umgangast nánasta umhverfi skjólstæðings af virðingu
- taka þátt í samræðum um líðan skjólstæðings