HLGS2SF04(AV) - Hlífðargassuða stálsmiða
MIG suða, TIG suða, suðuferilslýsingar
Einingafjöldi: 4
Þrep: 2
Forkröfur: HLGS2MT03
Þrep: 2
Forkröfur: HLGS2MT03
Í áfanganum læra nemendur að undirbúa og sjóða MIG-suðu og Tig-suðu á áli, ryðfríu stáli og einnig á stáli. Þeir læra að sjóða efnisþykktir 2 – 6 mm í stál , ryðfrítt stál og ál samkvæmt gæðaflokki C (ÍST EN 25817) í plötu og rör. Þeir skipuleggja suðuverkefni m.t.t. krafna um gæði, öryggi og umhverfi. Nemendur læra að sjóða eftir suðuferilslýsingum og öðlast þekkingu á kostum mismunandi suðuvíra og aðferða.
Þekkingarviðmið
- suðuferilslýsingum og gildi þeirra
- áhrifum mismunandi skögunar vírs á straumstyrk, afköst og innbræðslu
- eiginleikum úðaboga- og stuttbogasuðu
- aðferðum til að hreinsa oxíðhúð af áli fyrir suðu
- helstu suðugöllum í áli og orsökum þeirra
- aðferðum til að hreinsa oxíðhúð af ryðfríu stáli eftir suðu
- áhrifum suðu á tæringarþol í ryðfríu stáli
- gastegundum og gasblöndum sem notaðar eru við suðu á stáli, áli og ryðfríu stáli
- hlutverki hlífðargassins og stillingum þess
- hlutum suðubyssunnar, drifbúnaði og leiðara fyrir MIG/MAG
- öryggisreglum við meðhöndlun hreinsiefna fyrir ryðfrítt stál
- helstu hættum og varúðarráðstöfunum vegna geislunar, hita, ósonmyndunar, reyks, ásamt eldfimum efnum, hlífðarfatnaði og hlífum
Leikniviðmið
- stilla suðutækin þ.e. straum, vírhraða, spennu og straumdempun (viðnám), þannig að hæfi efnisþykkt og suðurauf
- setja rúlluvír í suðutækin og velja rétta spíssa, drifbúnað og barka
- sjóða í suðustöðum PA-BW, PA-FW, PB-FW, PC-BW, PF-FW, PF-BW
- gegnumsjóða 5 mm stálplötu öðru megin frá í suðustöðu PF-BW í V-rauf
- hreinsa oxíðhúð af áli fyrir suðu
- hreinsa oxíðhúð af ryðfríu stáli eftir suðu
- sjóða eftir suðuferilslýsingum
Hæfnisviðmið
- stilla gasflæði, velja gashulsu og skaut
- meta algengustu suðugalla og orsakir þeirra
- mæla og skrá viðeigandi upplýsingar varðandi suðuverkefnið s.s. spennu, straum, raufarstærð og aðrar upplýsingar fyrir suðuferlislýsingar
- velja vír m.t.t. efnis og suðuraufar
- sinna viðhaldi á fylgibúnaði suðuvéla
- velja rétta spíssa
- greina suðugalla í áli
- greina helstu hættur, gera varúðarráðstafanir og nota viðeigandi öryggisbúnað