HBLÁ3FB02(BH) - Hárblástur 2
Hárblástur
Einingafjöldi: 2
Þrep: 3
Forkröfur: HBLÁ2FB01AH
Þrep: 3
Forkröfur: HBLÁ2FB01AH
Nemandinn öðlast aukna færni í klassískum dömublæstri auk ýmiskonar tískublásturs. Unnið er með ýmsar hárlengdir og form fyrir dömur og herra. Nemandinn kynnist og notar ýmis blásturs- og hármótunarefni og hitajárn þar sem við á.
Þekkingarviðmið
- mismunandi aðferðum við að ná fyrirfram ákveðnu blástursformi.
- að blása stífan rúllublástur í ákveðið form.
- mismunandi áhöldum og efnum til blásturs.
Leikniviðmið
- blása dömu og herrahár í fyrirfram ákveðin form.
- blása stífan dömublástur.
- blása tískublástur dömu og herra.
- velja viðeigandi hármótunarefni fyrir blástur og eftirmeðhöndlun.
Hæfnisviðmið
- blása/forma herrahár í mismunandi form.
- blása dömublástur eftir óskum viðskiptavinar.
- sjá út og framkvæma þann blástur sem hæfir viðskiptavini.
- velja mótunarefni við hæfi.
- ganga vel um vinnusvæði, gæta öryggis og hreinlætis.