HKLI2GB03(BH) - Hársnyrting 2
Grunnbraut
Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: HKLI1GB03AH
Þrep: 2
Forkröfur: HKLI1GB03AH
Nemandinn fær þjálfun í klippingum á æfingahöfði, öðlast grunnþekkingu á formklippingu (herra) og aukna þekkingu á jafnsíðu formi, fláa, auknum styttum, jöfnum styttum og þynningu. Kynnt er vinna með klippivélum með mismunandi kömbum og mismunandi aðferðir við þynningu í hári.
Nemandinn dýpkar skilning sinn og færni í gerð verklýsinga og nýtingu þeirra.
Þekkingarviðmið
- ýmsum hugtökum sem tengjast klippingum.
- notkun og umhirðu klippivéla.
- notkun og gerð verklýsinga.
Leikniviðmið
- klippa hnakka og hliðartopp snöggt með vél og skærum.
- klippa formklippingu á æfingahöfði samkvæmt kennslukerfi.
- klippa dömu- og herraklippingar samkvæmt verklýsingu á æfingahöfði.
- gera verklýsingar fyrir dömu og herraklippingar.
Hæfnisviðmið
- beita greiðum, skærum, þynningarskærum, hnífum og klippivél með skiptanlegum kömbum.
- gera verklýsingar.
- geta séð fyrir sér form í klippingum.