ITEI1GB05(AH) - Iðnteikning háriðna 1
Grunnbraut
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Þrep: 1
Nemandinn kynnist grunnþáttum í teikni-, lita- og formfræðum.
Teiknuð verkefni með mismunandi blýjum og aðferðum.
- teiknuð andlit og hárgreiðslur sem byggja á reglu gullinsniðs.
Litafræði Ittens kynnt.
- gerður samanburður við litastjörnu í hári og verkefni unnin sem tengjast bæði litafræði og hársnyrtinámi.
Formfræði skoðuð og sett í samhengi við klippingar og greiðslur.
Nemandi þjálfaður í efnis-, upplýsinga- og heimildaöflun, auk varðveislu gagna.
Lagður grunnur að námsbók sem sýnir verkefnavinnu og námsframfarir nemanda.
Þekkingarviðmið
- mismunandi blýjum og teikniaðferðum.
- fjarvídd og skyggingum.
- gullinsniði.
- litafræði Itten.
- grunnformum.
- mismunandi leiðum og nálgun á heimildaleit og varðveislu gagna.
- námsbók.
Leikniviðmið
- þekkja eiginleika mismunandi blýja.
- skyggja og ná fram fjarvídd í teikningu samkvæmt fyrirmynd.
- nýta gullinsniðsregluna í teikningu og formfræði.
- leita að og varðveita gögn og heimildir hvort sem er á veraldarvefnum eða með hugmyndabók.
- safna gögnum og setja upp í námsbók.
Hæfnisviðmið
- skynja og sjá tengsl milli þess sem hann sér sem fyrirmynd og verkefna sem unnin eru.
- ná fram áhrifum, formútfærslum og formgerðum ásamt áferðum fyrirmyndar í verkefnum með mismunandi aðferðum.
- geta valið sér ákjósanlega leið í varðveislu gagna og framsetningu á efni, bæði á rafrænu og áþreifanlegu formi.