HLGS3TS04(AV) - TIG suða
TIG suða, stál, suðustaðir
Einingafjöldi: 4
Þrep: 3
Forkröfur: HLGS2SF04
Þrep: 3
Forkröfur: HLGS2SF04
Í áfanganum læra nemendur að undirbúa og sjóða TIG-suðu á kol- og kolmangan stáli og ryðfríu stáli svo þeir geti soðið efnisþykktir 1 - 3 mm í plötu með gegnumsuðu frá annarri hlið í suðustöðum PA, PC og PF samkvæmt gæðaflokki C (ÍST EN 25817). Þeir læra að sjóða rör í láréttri og lóðréttri stöðu og þekkja notkun bakgasbúnaðar. Farið er yfir stillingar á vélum og hlífðargasi. Lögð er áhersla á að nemendur geti soðið eftir suðuferlislýsingum. Ennfremur verða þeir færir um að skipuleggja suðuverkefni m.t.t. krafna um gæði, öryggi og umhverfi.
Þekkingarviðmið
- gastegundum og gasblöndum sem notaðar eru við suðu á ryðfríu stáli
- bakgasi og bakgasbúnaði
- hlutverki hlífðargassins og réttum stillingum þess
- mismunandi gerðum rafskauta
- öllum hlutum suðubyssunnar og leiðara
- virkni suðutækja
- ljósboganum og mismunandi straumferlum háspennu og hátíðnitækni í TIG - suðuvélum
- aðferðum við hreinsun á yfirborði suðu
- öryggisreglum varðandi hreinsiefni
- helstu hættum og varúðarráðstöfunum vegna geislunar, hita, reyks, ósonmyndunar og eldfimra efna
Leikniviðmið
- stilla suðutækin þannig að henti efni og suðurauf
- velja vír m.t.t. efnis og suðuraufar
- stilla gasflæði, velja gashulsu og skaut m.t.t.efnis og straumstyrks
- sjóða í suðustöðum PA, PC og PF í plötu
- sjóða rör í láréttri og lóðréttri stöðu
- sjóða eftir suðuferlislýsingum
Hæfnisviðmið
- skrá viðeigandi upplýsingar varðandi suðuverkefnið, straumstyrk, raufarstærð og aðrar upplýsingar fyrir suðuferlislýsingar
- sinna viðhaldi fylgibúnaðar suðuvéla
- uppfylla reglur um öryggismál
- skipuleggja suðuverkefni m.t.t. krafna um gæði, öryggi og umhverfi
- meta viðeigandi upplýsingar varðandi suðuverkefnið, straumstyrk, raufarstærð og aðrar upplýsingar fyrir suðuferlislýsingar