Fara í efni

BRAF2MR05 - Mælingar, raflagnir og ljósakerfi

ljósakerfi, mælingar, raflagnir

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Farið yfir grunnatriði og útreikninga í raffræði: U=IR, P=UI, I1+I2+I3=I4+I5, U=U1+U2, R=R1+R2...., R=1/R1+1/R2... Gerðar tilraunir og æfingar á íhlutum og samsettum rafrásum. Farið er yfir rafbúnað ökutækja og fjallað um heiti, tilgang, virkni og aðgæsluatriði í umgengni við rafbúnað. Áhersla lögð á varnir gegn skemmdum og slysum vegna brunahættu, skammhlaups og sýrubruna. Farið yfir rafkerfi og íhluti þeirra í rafteikningu. Nemendur teikna sama rafkerfið með tveimur teikniaðferðum, þ.e. með staðsetningu lagna og hluta eins og þeir væru staðsettir í ökutækinu og með línuteikningu DIN. Farið yfir rafteikningar frá ýmsum framleiðendum. Æfingar við rafkerfi samkvæmt teikningum og fyrirmælum. Farið í grundvallaratriði ljósfræði og lýsingartækni. Farið yfir ýmsar gerðir ljóskera og íhluti tengda þeim, prófanir, viðhald og viðgerðir. Raflagnir: varbúnaður, val á leiðara, tengingar, bilanaleit og viðgerðir. Farið yfir reglugerð um ljósabúnað. Unnið að stillingum aðalljóskera í bifreiðum.

Þekkingarviðmið

  • helstu reikniaðferðum Ohm´s og Kirchoff´s
  • helstu mæli- og prófunartækjum sem notuð eru við rafbúnað ökutækja
  • þörf fyrir varbúnað í raflögnum ökutækja
  • virkni raftækja og rafbúnaðar ökutækja
  • helstu gerðum ljósgjafa og ljóskera í ökutækjum, virkni þeirra og viðhaldsreglum
  • kröfum reglugerða um ljósabúnað sem skylt er að hafa í ökutækjum svo og ljósabúnaði sem leyfilegt er að hafa

Leikniviðmið

  • mæla straum, spennu og viðnám í rakstraumsrásum
  • reikna viðnám í mótstöðum tengdum á mismunandi hátt
  • reikna stærðir samkvæmt U=IR og P=UI í raðtengdum og hliðtengdum rafrásum
  • beita ýmisum mælitækjum svo sem fjölsviðsmælum og sveiflusjá
  • lesa úr algengum teikningum af rafkerfum og rafbúnaði ökutækja
  • teikna einfalt rafkerfi bifreiðar samkvæmt DIN-staðli (línuteikning)
  • vinna með reglugerð um ljósbúnað ökutækja

Hæfnisviðmið

  • gera grein fyrir hugtökunum spenna, straumur og viðnám
  • lýsa virkni almennra raftækja og rafbúnaðar ökutækja
  • gera grein fyrir orkuþörf rafneyslutækja í ökutækjum
  • útskýra rafteikningar frá ýmsum framleiðendum
  • finna íhluti rafkerfa í ökutækjum samkvæmt teikningum og fyrirmælum
  • prófa ljósabúnað og finna bilanir
  • gera við bilanir í ljósakerfi og raflögnum
  • skipta um ljósgjafa og ljósker ásamt búnaði
  • stilla aðalljósker og önnur ljósker sem krafist er að séu stillt
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?