BVSF3SH03 - Stýri, fjöðrun og hjólastilling
Stýri, fjöðrun, hjólastilling
Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Forkröfur: BVSF2SF03
Þrep: 3
Forkröfur: BVSF2SF03
Farið yfir aðferðir við mat á ástandi búnaðar og íhluta í undirvagni og vinnubrögð við undirbúning og framkvæmd hjólastillinga, bæði tvíhjóla- og fjórhjólastillinga. Farið yfir hjólhorn og tilgang þeirra. Gerðar æfingar í hjólastillingum með vélrænum og rafrænum tækjum. Farið yfir ýmsar aðferðir til að mæla burðarvirki og undirvagn. Áhersla á hættur við vinnu undir ökutæki, nákvæm vinnubrögð og akstursöryggi eftir viðgerð.
Þekkingarviðmið
- hjólhornum og tilgangi með kröfum til stýris-, fjöðrunar- og hjólabúnaðar í reglugerð um gerð og búnað ökutækja
- kröfum reglugerðar um gerð og búnað ökutækja sem varða hjólastillingar
- aðferðum til að meta ástand burðarvirkis og yfirbyggingar
- kröfum til burðarvirkis í reglugerð um gerð og búnað ökutækja
Leikniviðmið
- ástandsskoða stýris- og fjöðrunarbúnað
- mæla og stilla hjólastefnu fólks- og flutningabifreiða
- nota bilanagreini við miðjustillingu stýris
Hæfnisviðmið
- lýsa mælingu burðarvirkis, sérstaklega vegna hjólfestinga, stýris- og fjöðrunarbúnaðar
- lýsa afleiðingum þess ef hjólhorn eru röng eða vanstillt
- undirbúa hjólastillingu