BURÐ1BK03 - Burðarvirki og klæðningar timburhúsa
burðarvirki, einangrun timburhúsa, klæðningar
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: TRÉS2PH10 og TRÉS2NT04
Þrep: 1
Forkröfur: TRÉS2PH10 og TRÉS2NT04
Nemandinn kynnist grunnatriðum í byggingaeðlisfræði svo sem kröfum til bygginga, innri og ytri kröftum burðarvirkis og mismunandi álagi á byggingahluta. Fjallað er um ýmsa almenna þætti hita-, hljóð- og rakaeinangrunar og brunatæknilegar útfærslur í byggingahlutum. Nemandinn lærir um loftræstar útveggjaklæðningar og mismunandi einangrunarkröfur byggingahluta. Fjallað er um eiginleika einstakra grindar- og klæðningaefna, gerð og þéttleika festinga, einangrun og afréttingu vegggrinda. Kennslan er fyrst og fremst bókleg þar sem lögð er áhersla á að tengja saman fræðilega umfjöllun, einstakar útfærslur og vinnubrögð með heimsóknum, sýnikennslu og eftir atvikum smærri verkefnum.
Þekkingarviðmið
- burðarvirki timburhúsa
- margskonar álagi sem byggingar verða fyrir
- klæðningum veggja og þaka
- mikilvægi loftræstingu byggingarhluta
- einangrun byggingarhluta
- rakavarnarlagi og mikilvægi þess
- varmaleiðni byggingarefna
- hljóðvist byggingarhluta
Leikniviðmið
- velja efni í burðarvirki timburhúsa samkvæmt styrktarflokkum
- velja klæðningarefni með tilliti til mismunandi aðstæðna og húsagerða
- velja smíðafestingar samkvæmt verklýsingu
- vinna með einangrun og rakavörn
Hæfnisviðmið
- smíða burðarvirki timburhúsa
- klæða útveggi, gólf og þök
- einangra byggingahluta
- fjalla um mismunandi gerðir timburklæðninga