TSVÉ2FT02 - Tölvustýrðar trésmíðavélar
forritun tölvustýrðra trésmíðavéla
Einingafjöldi: 2
Þrep: 2
Forkröfur: TRÉS2PH10 og TRÉS2NT04
Þrep: 2
Forkröfur: TRÉS2PH10 og TRÉS2NT04
Í áfanganum lærir nemandinn grunnatriði í virkni og notkun tölvustýrðra trésmíðavéla með áherslu á sambandið milli tölvuteikninga (CAD), færsluskipana (CAM) og framleiðslu (CNC). Fjallað er um helstu hugtök sem tengjast notkun tölva í framleiðsluumhverfi, stafræna stýringu og forritun CNC-véla. Áherslan er á uppbyggingu CNC-forrita og hvernig nota má þau til að einfalda vinnu á trésmíðaverkstæðum. Nemandinn öðlast einnig þekkingu í öryggismálum varðandi umgengni við tölvustýrðar vélar.
Áfanginn er ætlaður nemendum í húsa– og húsgagnasmíðum og er að mestu leiti bóklegur þar sem nemandinn kynnist algengustu viðmótum tölvustýrðra trésmíðavéla hérlendis.
Þekkingarviðmið
- uppbyggingu CNC forrita og grunnatriði tölvustýrðra trésmíðavéla
- notkun og mismun á NC og CNC forritanlegum trésmíðavélum
- einfaldri forritun í CNC umhverfi
- tölvustýrðum vinnslustöðvum með 3 til 5 ása
Leikniviðmið
- útbúa vinnsluferli í CNC umhverfi eftir teikningum
- nota tölvustýrðar trésmíðavélar
- líkja eftir vinnslu trésmíðavéla í einmenndingstölvum
- velja verkfæri sem hæfa því sem vinna á
- framkvæma vinnsluferli í stafrænu umhverfi
Hæfnisviðmið
- vinna á trésmíðaverkstæði með vélar sem vinna í stafrænu umhverfi
- velja verkfæri sem hæfa því sem vinna á
- vera öruggur í umgengni við tölvustýrðar trésmíðavélar