VINN2ÖH08(AV) - Verknám á hjúkrunaheimili eða öldrunarlækningadeild
öldrunarhjúkrun
Einingafjöldi: 8
Þrep: 2
Þrep: 2
Vinnustaðanámið/verknámið fer fram á öldrunarlækningadeildum eða hjúkrunarheimilum. Kennari áfangans, sjúkraliði/leiðbeinandi og deildarstjóri bera sameiginlega ábyrgð á verklegu námi sjúkraliðanema. Nemandinn fylgir leiðbeinanda við öll almenn störf sjúkraliða. Í vinnustaðanáminu fær nemandinn tækifæri til þess að sýna aukið sjálfstæði við skipulagningu hjúkrunarstarfa og við mat á hjúkrunarþörfum skjólstæðinga, jafnframt að benda á lausnir á þeim hjúkrunarviðfangsefnum sem við eiga á vinnustaðnum. Í upphafi tímabils setur nemandinn sér persónuleg og fagleg markmið um verknámið. Á meðan á verknámi stendur skal nemandinn fylla út gátlista og ferilbók um unna verkþætti.
Þekkingarviðmið
- athöfnum daglegs lífs (ADL) við umönnun aldraðra
- helstu þáttum sem hafa áhrif á heilsu og lífsgæði aldraðra
- forvörnum og slysagildrum í umhverfi aldraðra
- fylgikvillum rúmlegu
- helstu hjálpartækjum sem notuð eru í hjúkrun aldraðra
- faglegri umhyggju og samskiptum í hjúkrunarstörfum
- mikilvægi eftirlits og mats á líkamlegu og andlegu ástandi skjólstæðinga
- mælitækjum og öðrum hjúkrunargögnum sem eru notuð í hjúkrun aldraðra
- skráningu hjúkrunar
- sjálfsákvörðunarrétti og réttindum aldraðra samkvæmt lögum
Leikniviðmið
- meta sjálfsbjargargetu og þarfir aldraðra í athöfnum daglegs lífs
- sýna öldruðum virðingu og faglega umhyggju
- mæla og skrá algengar athuganir
- nota helstu hjálpartæki og hjúkrunargögn á viðeigandi hátt
- taka þátt í þverfaglegri samvinnu heilbrigðisstétta
- forgangsraða eigin störfum
- vinna samkvæmt hjúkrunarferli
Hæfnisviðmið
- velja viðeigandi hjúkrunarmeðferð hverju sinni og rökstyðja hana
- virða og rökstyðja mikilvægi þagnarskyldu og mikilvægi trúnaðar
- sýna færni í samskiptum við aldraða, aðstandendur þeirra og samstarfsfólk
- sýna faglega umhyggju í hjúkrun
- leggja sitt að mörkum í þverfaglegri samvinnu
- hjúkra öldruðum á heildrænan og faglegan hátt
- útskýra mikilvægi þagnarskyldu og réttindi aldraðra