BVRT3RB05 - Rafeindatækni í bifvélavirkjun
Rafeindatækni í bifvélavirkjun
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Þrep: 3
Farið yfir gerð rása, íhluti (hálfleiðara, viðnám, þétta, spólur) og virkni þeirra. Farið yfir raftæki ökutækja sem starfa á einhvern hátt með púlsandi straumi. Skoðað samspil þeirra gilda sem skipta máli varðandi gerð straum- og spennupúlsa og tímastillinga. Gerðir útreikningar og æfingar í meðferð sveiflusjár. Áhersla á að nemendur kunni nægileg skil á undirstöðu rafmagnsfræðinnar til að geta unnið með íhluti og tæki. Farið yfir díóður, zener-díóður, spennustilla, transistora, thyristora og rafeindaviðnáma (NTC-PTC). Skoðuð gerð og virkni rökrásahliða (aðgerðamagnara) í einföldum rásum og samsettum rásum. Gerðir útreikningar og æfingar í gerð einfaldra rása með tilvísan í ökutæki. Farið yfir vinnubrögð og notkun verkfæra sem þarf til að gera rafeindarásir. Gerðar tilraunir og æfingar á verkefnabretti.
Þekkingarviðmið
- undirstöðuatriðum rafmagnsfræðinnar
- nöfnum og virkni algengra íhluta í rafeindarásum
- raftækjum ökutækja sem starfa á einhvern hátt með púlsandi straumi
- helstu torleiðurum, gerð þeirra, virkni og notagildi í rafbúnaði ökutækja gerð og virkni rökrásahliða
Leikniviðmið
- reikna helstu gildi í tímastilltum rásum
- tengja sveiflusjá við rás og sýna púlsa rásarinnar
- nota sveiflusjá við skoðun einfaldra rafeindarása
- reikna út eiginleika torleiðara
- setja saman einfaldar rafeindarásir
Hæfnisviðmið
- lýsa virkni tímastilltra rása (RL- og RC-rásir) og hugtökum sem gilda um púlsa í rafrásum
- lýsa einföldum rafeindarásum í rafbúnaði ökutækja