RÖKV1RS03(AV) - Segulliðastýringar 1
rofar, snertur, spólur, tímaliðar
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Í þessum áfanga er fjallað um grunnvirkni og notkun rofa og segulliða, rofa- og snertitækni kynnt. Fjallað er um virkni og notkun segulliða í stýrirásum og kraftrásum og tímaliða í stýrirásum. Farið er í undirstöðuatriði við gerð á einlínu- og fjöllínumyndum svo og tákn og staðla sem notaðir eru við gerð teikninga fyrir segulliðastýringar. Nemandinn fær þjálfun í að tengja, prófa og mæla og taka saman niðurstöður. Einnig er lögð áhersla á að nemandinn nýti sér mælitæki til að finna tengivillur og bilanir.
Þekkingarviðmið
- einfaldri gerð rofa og segulliða
- virkni og uppbyggingu segulliða
- virkni og gerð tímaliða
Leikniviðmið
- lesa einfaldar einlínu- og fjöllínuteikningar
- hanna minni og einfaldar rofa- og segulliðastýringar
Hæfnisviðmið
- tengja einfaldar stýrirásir
- nýta mælitæki fyrir einfaldar stýrirásir