MEKV2TK03(AV) - Mekatronik 3
kóðabreytar, samrásir, teljarar
Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: MEKV1ST03
Þrep: 2
Forkröfur: MEKV1ST03
Í áfanganum kynnast nemendur samrásum og virkni þeirra. Samrásir sem skoðaðar verða eru m.a.: samlagningarrás, samanburðarrás, kóðabreytir, línuveljari, teljari og hliðrunarsérminni. Virkni lása og vipna er krufin svo og samfasa og ósamfasa teljara. Lögð er áhersla á verklegar æfingar og verkefnavinnu þar sem nemendur tengja og prófa rásirnar á tengispjöldum ásamt því að teikna þær og prófa virkni þeirra í hermiforriti.
Tölvutækni er notuð við verkefnavinnu og skýrslugerð. Nemendur læra að setja upp og viðhalda einföldu blogg vefkerfi. Lögð er áhersla á flokkun efnis og leit að gögnum í vefkerfi.
Þekkingarviðmið
- virkni helstu samrása
- virkni helstu lása og vippna
- virkni helstu púlsgjafa
- eiginleikum einfaldra bloggkerfa
Leikniviðmið
- beita mælitækjum við að prófa rökrásir
- beita hermiforritum til prófunar á rökrásum
- forma færslur í bloggkerfi
Hæfnisviðmið
- hanna samfasa teljara
- flokka og vista gögn og tilvísanir í miðlægu vefkerfi
- ritstýra eigin vefkerfi
- tengja samrás í hermiforriti og prófa hana