RALV1RÖ03(AV) - Raflagnir 1
kapallagnir, lagnatækni, röralagnir, tengingar
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Nemandinn kynnist vel starfi og starfssviði rafiðnaðarmannsins, öðlast skilning á eðlisfræðilegri hegðun rafmagns og fræðist um virkni ólíkra rofa með tengi- og smíða verkefnum. Einnig kynnist hann því efni sem notast er við í einfaldar raflagnir. Nemandinn fær fræðslu um öryggismál og kynnist reglugerðum sem gilda fyrir fagið.
Þekkingarviðmið
- öryggismálum og reglugerðum er varða vinnu við rafmagn
- verkfærum rafiðnarmannsins og helstu störfum
- virkni mismunandi rofa
- helstu teiknitáknum
- litakóða víra
Leikniviðmið
- tengja rofa, samrofa, krónurofa og krossrofa
- leggja kapallagnir fagmannlega á lítið spjald
- leggja röralagnir fagmannlega á lítið spjald
- tengja falir, klær og fjöltengi
- beita réttum verkfærum
Hæfnisviðmið
- skilja muninn á hinum ýmsu efnum með tilliti til mismunandi aðstæðna
- setja upp rofa með tilliti til aðstæðna
- greina mun á faglegum og ófaglegum vinnubrögðum
- gæta fyllsta öryggis í umgengni við rafmagn