BMRÖ4ÖS05 - Öryggisbúnaður S.R.S
S.R.S, Öryggisbúnaður
Einingafjöldi: 5
Þrep: 4
Þrep: 4
Farið yfir öryggisbúnað, m.a. loftpúða og beltastrekkjara, einnig er farið yfir annan þann búnað sem er skilgreindur sem SRS. Áhersla er lögð á hættur af umgengni við öryggis- og verndarbúnað með sprengihleðslu, s.s. púða í stýri, mælaborði, hnjápúða og í hliðum farþegarýmis og öryggisbeltum við þjónustu og björgunarstörf. Farið yfir aðferðir við viðgerðir og frágang raflagna SRS búnaðar. Farið yfir ýmsan rafeindabúnað í ökutækjum með áherslu á algeng hreyfilstjórnkerfi og önnur stjórnkerfi. Farið yfir gerð sannindatöflu og umreikning milli talnakerfa. Leit að upplýsingum um viðfangsefni áfangans og lestur viðgerðarbóka. Farið yfir notkun og meðferð mæli- og prófunartækja s.s. sveiflusjá og bilanagreina. Gerðar tilraunir og æfingar með rökrásarbúnað. Skoðun, prófun og greining á ástandi stýrikerfa.
Þekkingarviðmið
- kröfum um öryggisbúnað í reglugerð um gerð og búnað ökutækja
- hættum sem stafa af rangri umgengni um öryggisbúnað
- kröfum um persónuhlífar við vinnu
- ýmsum rafeindabúnaði í ökutækjum sem stjórnar vinnu hreyfla, gírkassa, fjöðrunar, öryggisbúnaðar, mælabúnaðar, þægindabúnaðar o.fl.
- virkni samskiptabúnaðar í tölvukerfum bifreiða
Leikniviðmið
- skoða og prófa öryggisbúnað
- gera við öryggisbúnað innan þeirra marka sem framleiðendur ætla almennum viðgerðamönnum
- umbreyta tugatölum í tvítölur
- nota mæli- og prófunartæki fyrir rafbúnað stýrikerfa
- leiðbeina umráðamanni ökutækis varðandi umgengni við rafeindastýrð stjórn- og eftirlitskerfi
Hæfnisviðmið
- lýsa virkni SRS kerfis
- þjónusta SRS kerfi
- skipta um einingar kerfa eftir reglum framleiðenda
- leiðbeina um umgengni og vinnu við SRS búnað
- lýsa sannindatöflum rökrása
- umreikna á milli talnakerfa
- leita upplýsinga um hvernig staðið skuli að bilanaleit
- lýsa prófun og greiningu á ástandi hreyfla með rafeindastýrð stjórn- og eftirlitskerfi