FRLV3DE05 - Forritanleg raflagnakerfi 1
Dali, EIB, hönnun
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Þrep: 3
Í áfanganum kynnast nemendur forritanlegum raflagnakerfum svo kölluðum heimilsistjórnarkerfum, tilgangi og möguleikum þeirra. Farið er í uppbyggingu kerfa, íhluti og virkni. Farið er skipulag við hönnun slíkra kerfa þ.e. virkniskrá kerfis, efnislista, lampaplön og undirbúning forritunar, skipulagi og forritun ljósasena. Nemendur fá þjálfun í forritun kerfa þannig að þeir geti á sjálfstæðan hátt sett upp og gengið frá slíkum kerfum til fulls og leiðbeint öðrum um notkun þeirra. Nemendur útbúa handbækur um kerfin.
Þekkingarviðmið
- helstu möguleikum forritanlegra raflagnakerfa
- helstu íhlutum kerfanna og hlutverkum þeirra
- helstu stýrimerkjum og lögnum milli þeirra
- staðlaákvæðum er kerfin varðar
Leikniviðmið
- leggja raflagnir og samskiptalagnir
- tengja og ganga frá búnaði
- forrita kerfi
Hæfnisviðmið
- velja búnað, lagnir og lagnaleiðir sem tilheyra kerfunum
- tengja og skila góðum frágangi búnaðar
- leiðbeina notendum um notkun kerfisins
- velja efni og búnað í forritanleg raflagnakerfi
- beita viðeigandi hugbúnaði til að forrita kerfi