RALV3IT05 - Raflagnir 6
iðnaðarveita, raflagnir, töflusmíði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: RALV3RT05
Þrep: 3
Forkröfur: RALV3RT05
Í þessum áfanga er fjallað um uppbyggingu á stærri húsveitum, raflagnir, lágspennu- og smáspennulagnir. Lögð er áhersla á lagnaefni, lagnaleiðir, aðal- og dreifitöflur, lýsingarkerfi, iðnaðartengla og tengikvíslar. Enn fremur boðskiptakerfi (loftnets-, dyrasíma- , síma- og tölvukerfi) í fjölbýlishúsum. Farið er í sérákvæði í reglugerðum varðandi raf- og smáspennulagnir. Gerð er aðaltafla fyrir iðnaðarveitu með straumspennamælingum, raf- og smáspennulögnum, lekastraumsvörn og spennujöfnun. Unnar eru tilkynninga- og mælingaskýrslur og gerðar efnis- og kostnaðaráætlanir.
Þekkingarviðmið
- uppbyggingu og virkni varnarráðstafana
- öryggismælingum á iðnaðarveitu
- reglugerðarákvæðum og stöðlum varðandi neysluveitur
- mismunandi lágspennu kerfum
Leikniviðmið
- tengja heimtaugar og mælitæki upp að 400 Amper
- setja upp og tengja aðaltöflu upp að 400 Amper
Hæfnisviðmið
- ákveða stærð aðaltöflu
- mæla hringrásarviðnám, einangrunarviðnám og fasaröðun
- gera úttektarskýrslu
- ákvarða röðun búnaðar í aðaltöflu
- skila verkinu fagmannalega frá sér