RÖKV4FS05 - Rökrásir 6
forritun, iðntölvur, reglun og skjámyndir
Einingafjöldi: 5
Þrep: 4
Forkröfur: RÖKV3HS05
Þrep: 4
Forkröfur: RÖKV3HS05
Í áfanganum er fjallað um stærri samsettar iðntölvur, eiginleika þeirra og tengingar við skjámyndakerfi. Nemendur fá kennslu og þjálfun í forritun iðntölva með ladder og virkniblokkum (FBD) og notkun ýmissa hjálpartækja við slíka forritun, svo sem PC-tölva og flæðimynda. Nemendur kynnast reglun og stillingum regla (P, PI og PID) og notkun skynjara (hliðrænna og stafrænna), og aðgerðarskjáa. Þá fá nemendur æfingu í að tengja ytri búnað við iðntölvu.
Þekkingarviðmið
- öllum helstu skipunum stafrænnar - og hliðænnar virkni
- möguleikum í samtengingu iðntölva með gagnabrautum
- aðgerðaskjám og notkun þeirra
- skynjurum, reglum og reikniaðgerðum
- tengingum við tíðnibreyta
- tengingum við mjúkræsa
- skjalagerð er varðar iðntölvustýringar
Leikniviðmið
- forrita iðntölvur í ladder og virkniblokkum
- forrita minni skjámyndakerfi
- tengja iðntölvur við ytri búnað s.s. skynjara og skjái
Hæfnisviðmið
- hanna stýringar
- vinna með hliðræn og stafræn merki
- hanna og vinna með skjámyndir
- tengja saman iðntölvur og skjámyndakerfi