RAMV2MJ05(AV) - Rafmagnsfræði 2 fyrir vélstjóra
jafnstraumsvélar, mælar
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: RAMV1HL05, STÆF2RH05
Þrep: 2
Forkröfur: RAMV1HL05, STÆF2RH05
Nemendur kynnast uppbyggingu og notkun rafmæla, öðlast þekkingu á segulmagni og rafsegulmagni og geta útskýrt grundvallarvinnumáta rafvéla út frá því. Nemendur öðlast þekkingu á uppbyggingu jafnstraumsvéla, á tengibúnaði jafnstraumsmótora og geta annast bilanaleit. Þá öðlast nemandinn þekkingu á undirstöðuatriðum riðstraumsrása og raflögnum í íbúðum.
Þekkingarviðmið
- notkun og tengingu helstu rafmæla í töflum
- segulmagni, rafsegulmagni og virkni þess í rafvélum
- uppbyggingu, ræsibúnaði og tengingu jafnstraumsmótora
- uppbyggingu rafkerfis í smábátum og einstökum hlutum þess
- uppbyggingu rafkerfis í íbúðum
- rafkerfum dísilvéla
- undirstöðuatriðum riðstraums og riðstraumsrása
- afli og fasviki í ein- og þriggja fasa riðstraumsrásum
- afleiðingum útleiðslu í skipum
Leikniviðmið
- tengja helstu tæki sem notuð eru í íbúðum s.s. ljós, rofa, tengla og klær.
- framkvæma einfaldar einangrunarmælingar í rafkerfi
Hæfnisviðmið
- framkvæma einfalt viðhald og bilanagreiningu á rafkerfum smábáta
- greina og finna útleiðslu í bátum
- framkvæma einfalt viðhald á rafkerfum íbúða