STAÞ1SB15 - Starfsþjálfun 1 bifvélavirkjun
starfsþjálfun í bifvélavirkjun
Einingafjöldi: 15
Þrep: 1
Þrep: 1
Í áfanganum eru nemendum kynntar kröfur um hreinlæti. Nemandanum eru kynntar samstarfsreglur starfsmanna og kurteis, heiðarleg og ábyrg framganga gagnvart vinnufélögum, vinnuveitanda og viðskiptavinum. Nemanda eru kynntar allar öryggskröfur á vinnustað og mikilvægt er að hann skilji mikilvægi þeirra. Honum skal gerð grein fyrir þeim hættum sem geta verið samfara vinnu við ökutæki þar meðtalið á lyftu. Nemandi skal læra meðhöndlun og beitingu allra handverkfæra sem nota þarf við bílaviðgerðir. Mikilvægt er að vinnubrögð hans séu fagmannleg frá upphafi. Hann á að geta unnið sem aðstoðarmaður bifvélavirkja og geta framkvæmt einfaldar viðgerðir. Gott er leyfa nemandanum að byrja á einföldum verkþáttum og bæta svo í eftir því sem hæfni hans eykst.
Þekkingarviðmið
- öryggiskröfum á vinnustað
- kröfum um þrifnað og frágang ökutækja fyrir viðgerð og afhendingu til eiganda
- kröfum framleiðanda um fagmannleg vinnubrögð
Leikniviðmið
- meðhöndla og beita handverkfærum sem þarf að nota við störf bifvélavirkja
- þrífa ökutæki fyrir og eftir viðgerð og koma því fyrir á lyftu samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda
- beita öryggisbúnaði á vinnustað
Hæfnisviðmið
- vinna eftir fyrirmælum yfirmanna og framleiðenda
- gera einfaldar þjónustuskoðanir samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda
- skipta um smáhluti í ökutækjum
- vinna í hópi að sameiginlegu markmiði