STAÞ2SB25 - Starfsþjálfun 2 bifvélavirkjun
starfsþjálfun í bifvélavirkjun
Einingafjöldi: 25
Þrep: 2
Forkröfur: STAÞ1SB15
Þrep: 2
Forkröfur: STAÞ1SB15
Í áfanganum heldur nemandinn áfram að byggja ofan á þá þekkingu sem hann hefur áður aflað sér í greininni. Hann kynnist enn betur öryggiskröfum og meðhöndlun efna og tækja sem notuð eru á bílaverkstæðum og lærir að þekkja þær hættur sem fylgja störfum í bíliðngreinum. Nemandinn kynnist kröfum framleiðenda um gæði íhluta, merkingar og efnisstaðla og þjálfast í að framkvæma einfaldar viðgerðir á ökutækjum eftir leiðbeiningum framleiðanda. Nemandinn fær einnig þjálfun í að lesa bilanaupplýsingar einfaldra kerfa í ökutækjum og til dæmis endurstilla handhemil. Lögð er áhersla á að nemandinn tileinki sér kurteisi og lipurð í samskiptum við samstarfsmenn og viðskiptavini.
Þekkingarviðmið
- þeim efnum sem unnið er með á bílaverkstæðum
- þeim tækjum sem notuð eru við vinnu í bifvélavirkjun
- meðferð spilliefna og úrgangs
- kröfum framleiðanda ökutækja um gæði íhluta, merkingar og efnisstaðla
Leikniviðmið
- meðhöndla smurefni, kælivökva, vélar, vélarhluta og aðra íhluti ökutækja
- nota handverkfæri sem tengjast viðkomandi iðngrein
- vinna við hand- og tölvustýrð tæki sem notuð eru á verkstæðum
- gera allar einfaldari viðgerðir á ökutækjum eftir leiðbeiningum framleiðanda
Hæfnisviðmið
- lesa bilanaupplýsingar einfaldra kerfa í ökutækjum, meta efnisþörf og kostnað
- vera ávallt meðvitaður um þær hættur sem fylgja störfum í bíliðngreinum og þær öryggiskröfur sem gerðar eru á vinnusvæðum
- skipta um einfalda slithluti og endur setja hugbúnað t.d. stöðuhemils
- eiga í samskiptum við samstarfsmenn og aðra iðnaðarmenn