STAÞ3SB25 - Starfsþjálfun 3 bifvélavirkjun
starfsþjálfun í bifvélavirkjun
Einingafjöldi: 25
Þrep: 3
Forkröfur: STAÞ2SB25. Nemandi þarf að hafa lokið námi á fyrstu tveim önnum bifvélavirkjunar.
Þrep: 3
Forkröfur: STAÞ2SB25. Nemandi þarf að hafa lokið námi á fyrstu tveim önnum bifvélavirkjunar.
Í þessum áfanga starfsþjálfunarinnar er lögð áhersla á að nemandinn geti unnið sjálfstætt m.a. að viðgerðum á boðskiptakerfum og ýmiss konar tölvukerfum. Nemandinn þjálfast í notkun mælitækja og rökhugsun við bilanaleit. Nemandinn fær þjálfun í að bilanagreina stýrikerfi ökutækja og meta hvort upplýsingar frá kerfunum séu trúverðugar. Í lok áfangans skal nemandinn hafa öðlast hæfni til þess að geta leiðbeint viðskiptavinum um val á viðgerðarleið. Nemandi skal geta efnistekið nákvæmlega og forgangsraðað verkþáttum viðgerða.
Þekkingarviðmið
- þeim efnum sem unnið er með í bifvélavirkjun allt frá vökvum að raflagnaefni
- þeim tækjum sem notuð eru við vinnu í bifvélavirkjun
- endurvinnslu efna eins og málma ásamt förgun spilliefna og úrgangs
- sérákvæðum varðandi raflagnir í ökutækjum
Leikniviðmið
- meta ástand mengunarvarnar búnaðar og gera tillögur að lagfæringum
- nota efni og verkfæri sem tengjast viðkomandi iðngrein
- vinna við tölvustýringar ökutækja
Hæfnisviðmið
- finna bilanir í raflögnum
- tengja meðalstór boðskiptakerfi s.s. loftnetskerfi og ljósleiðara
- mæla hringrásarviðnám og einangrunnarviðnám
- leiðbeina viðskiptavinum varðandi val á viðgerðarleið