RRVV3VR05 - Rafvélar 2
viðgerðir raftækja og bilanagreining
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: RRVV3RD05
Þrep: 3
Forkröfur: RRVV3RD05
Áfanginn er sá hluti rafvélakennslunar sem kenndur er á verkstæði með aðstöðu til að taka sundur tæki og til viðgerða minni og stærri rafvéla og raftækja. Í áfanganum er lögð áhersla á undirstöðuatriði er varða jafnstraumsvélar og einfasa riðstraumshreyfla í hinum ýmsu raftækjum. Einnig er lögð áhersla á viðgerðir og viðhald þriggjafasa rafvéla s.s. leguskipti og ýmsar mælingar. Þá er lögð áhersla á að nemendur æfist í að nota mælitæki og verkfæri rafiðnaðarmanna, greina bilanir og gera við raftæki og venjist við að taka tillit til öryggissjónarmiða við viðgerðir svo og kostnaðarmat. Gerð er grein fyrir þýðingu merkiskilta á vélum og tækjum. Farið er yfir öryggisatriði í umgengni á spennum , bæði stórum og smáum.
Þekkingarviðmið
- lögum og reglugerðum
- öryggiskröfum sem gerðar eru til laustengdra tækja
- merkingum rafbúnaðar
Leikniviðmið
- beita verkfærum og mælitækjum er leiða í ljós ástand rafvéla og raftækja
- hafa gott vald á vélum og verkfærum sem notuð eru í störfum rafiðnaðarmanna
- hafa skilning á hættum er fylgi því að umgangast raftæki
Hæfnisviðmið
- bilanagreina og meta ástand hinna ýmsu rafvéla og tækja
- annast viðhald og uppsetningu rafbúnaðar