REIT2AR05 - Rafeindatækni 1
afriðilsrásir, rafeindarásir, stýrirásir
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Þrep: 2
Í áfanganum öðlast nemandinn haldgóða grunnþekkingu í rafeindatækni og uppbyggingu og virkni rafeindatækja og eiginleikum íhluta, hlutverki þeirra og virkni. Hann öðlast þekkingu og færni í rafeindafræðum svo hann geti skilið og reiknað einfaldar rafeindarásir. Hann fær þjálfun í að tengja og mæla afriðilsrásir og stýrirásir fyrir transistora og týristora og notkun aðgerðamagnara. Einnig þjálfun og færni í að meta ástand rafeindatækja og gera einfaldar bilanagreiningar með mælitækjum.
Þekkingarviðmið
- notkun ýmissa mótstaða
- litamerkingum til að ákveða stærð línulegra mótstaða
- uppbyggingu þétta
- hleðslu- og afhleðslutíma þétta
- mun á póluðum og ópóluðum þéttum m.t.t. tenginga
- uppbyggingu díóða, vinnumáta þeirra og hvernig þær haga sér í straumrás
- hvernig á að ákvarða stærð díóða í afriðilsrás
- samanburðarmagnara og helstu notkunarsviðum hans
- áhrifum spanálags í afriðilsrás og geti útskýrt þau í stýrðri einfasa afriðun
- stýrirásum fyrir týristora
- mismun á núllstýringu og fasastýringu
- notkun áriðunarrása í tíðnibreytum og vektorastýringum
Leikniviðmið
- teikna ein- og þriggja fasa afriðun
- viðnámsmæla transistora
- teikna og útskýra rás fyrir hálfbylgju- og heilbylgjuafriðun án og með síuþétti
- teikna afriðuðu spennuna fyrir og eftir tengingu þéttisins
- teikna magnararás með einum transistor fyrir jafnstraum og útskýra vinnumáta hennar
- kanna ástand framangreindra íhluta og meta hvort þeir eru í lagi eða ekki
- teikna og útskýra algengar afriðilsrásir með týristorum bæði einfasa og þriggja fasa
- teikna afriðuðu spennuna fyrir mismunandi kveikihorn stýrðu díóðunnar
- teikna og útskýra algengar spennustýrirásir með tríökkum og teikna stýrðu spennuna fyrir mismunandi opnunarhorn tríakksins
- teikna og útskýra einfaldar áriðunarrásir
Hæfnisviðmið
- útskýra vinnumáta týristora
- útskýra tilganginn með púlsvíddarmótun
- útskýra hugtakið straummögnun transistora
- útskýra ein- og þriggja fasa afriðun
- útskýra rásir sem byggjast á virkni einlags transistorsins (UJT) annars vegar og sagartannarspennu hins vegar
- ákveða stærðir í spennugjafa, sem tekur inn riðspennu og gefur út jafnspennu, út frá gefnum forsendum
- vinna kerfisbundið að bilanagreiningu í einföldum rafeindarásum
- tengja og mæla afriðilsrásir og stýrirásir með transistorum og týristorum