INNA2IK03 - Innangerð húsa
Innanhússklæðningar
Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: TRÉS2NT04 og TRÉS2PH10
Þrep: 2
Forkröfur: TRÉS2NT04 og TRÉS2PH10
Í áfanganum lærir nemandinn um létt byggingavirki innanhúss með áherslu á útfærslur og klæðningu veggja, lofta og gólfa. Nemandinn lærir um uppsetningu grindar- og klæðningakerfi, efnisnotkun, festingar, einangrun, áhöld, tæki og vinnuaðferðir. Nemandinn lærir um smíði léttra innveggja úr blikkstoðum, klæðningu þeirra með gifsplötum, uppsetningu niðurhengdra kerfislofta og lagningu mismunandi gólfefna. Nemandinn lærir um útfærslur og frágang á léttum byggingavirkjum í votrými með tilliti til mygluvarna. Áfanginn er bæði ætlaður húsa- og húsgagnasmiðum og kennslan er að mestu bókleg.
Þekkingarviðmið
- mismunandi gerðum inniklæðninga
- uppbyggingu innveggja
- hljóðvist húsa
- niðurdeilingu klæðningarefna
- frágang í votrými
- mygluvörnum
Leikniviðmið
- smíða innveggi eftir verklýsingu
- velja byggingaefni og festingar við hæfi
- vinna með mismunandi klæðningaefni
- áætla efnismagn til klæðninga
- deila niður klæðningaefnum
Hæfnisviðmið
- nýta byggingaefni sem best
- velja klæðningaefni eftir aðstæðum
- klæða veggi, gólf og loft
- fjalla um mismundandi gerðir klæðninga