FJSV3RE05(CV) - Fjarskiptatækni
kaplar, loftnet, tíðniróf
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Þrep: 3
Í áfanganum eru tekin fyrir fjarskiptakerfi fyrir hærri tíðnir og fjallað um mismunandi stafrænar mótunar- og dreifingaraðferðir. Fjallað er um fjarskiptadreifikerfi þjónustuveitna og fjarskiptafyrirtækja á Íslandi. Fjallað er um fjarskiptalög og reglugerðir. Fjallað er um helstur burðarleiðar fjarskipta um landið og til og frá landinu. Kennd er notkun mælitækja til mælinga á boðskiptalögnum. Farið er í ljósleiðarakerfi og stærri dreifikerfi fjarskipta. Þá er fjallað um efnistöku, verðútreikninga, tilboðsgerð og úttektir er varðar fjarskiptalagnir og þjónustu.
Þekkingarviðmið
- fjarskiptakerfum fjarskiptafyrirtækja
- fjarskiptalögum og reglugerðum
- burðarleiðum fjarskipta um landið og til og frá landinu.
- uppbyggingu farsímakerfa
- uppbyggingu stafrænna fjarskiptakerfa
- gervihnattamóttöku og meðferð slíkra merkja
- dreifikerfum fyrir stafræn merki
Leikniviðmið
- greina bilanir í fjarskiptakerfum
- gera úttektir á fjarskiptakerfum
- reikna út verð efnis og vinnu við fjarskiptakerfi
- nota fjarskiptalöggjöf tengt vinnu við fjarskiptakerfi
- greina merki farsímakerfa
- greina þarfir fyrirtækja
- setja upp og tengja gervihnattadisk
- mæla og greina stafræn og hliðræn merki
Hæfnisviðmið
- geta mælt og tekið út fjarskiptalagnir fyrirtækja
- geta magntekið og áætlað vinnu við fjarskiptakerfi
- geta greint merki hvort sem er á CAT kapli, ljósleiðara eða sammiðjukapli
- geta mælt og greint merki farsímakerfa
- geta skipulagt og ráðlagt um fjarskipti og boðskiptalagnir fyrirtækja
- geta sett upp gervihnattadisk og stillt