RABV3RE05(BV) - Rafeindabúnaður og mælingar
magnarar, mælitæki, sveiflusjár, transistorrásir
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Þrep: 3
Nemendur kynnist SM (Switch mode) spennugjafatækni og samanburði hennar við línulega spennugjafa. Læra um virkni SM spennugjafa, geri einfalda bilanagreiningu í slíkum tækjum og öðlist skilning á virkni þeirra. Áhersla lögð á verklega vinnu við mælingar og túlkun mælingarniðurstaða. Kynntar eru nokkrar gerðir orkubreyta, magnara og sérhæfðra magnara. Vinna við greiningu og bilanaleit í línulegum spennugjöfum. Lögð er áhersla á teikningalestur og greiningu búnaðar í einingar (blokkir) til að staðsetja virkni.
Þekkingarviðmið
- virkni mismunandi SM rása
- virkni línulegra spennubreyta
- virkni orkubreyta
- virkni og mikilvægi jarðsambanda innan rafeindarása.
Leikniviðmið
- mæla SM rásir og gera sér grein fyrir mögulegum orsakavöldum bilana.
- mæla línulega spennugjafa og bilanagreina.
Hæfnisviðmið
- greina tegund SM spennugjafa.
- teikna blokkmynd af SM spennugjafa.
- mæla SM spennugjafa með bilun í og greina orsök.
- mæla línulega spennugjafa með bilun í og greina orsök.