STTV3RE05(BV) - Stýritækni og forritun
forritunarmál, hugbúnaðargerð, sjálfvirkni, stýringar, þróunarumhverfi
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Þrep: 3
Þessi áfangi er í beinu framhaldi af STTV2RE05AR og í honum er farið dýpra í forritun í þriðja kynslóðar forritunarmáli. Farið er dýpra í fylki og föll ásamt því að fjallað er um flóknari gagnatög eins og klasa. Lögð er áhersla á forritun fyrir stýritölvur og að vinna verkefni sem fela í sér hverskonar sjálfvirkni. Nemendur læra að nota vefþjónustur til að geyma gögn sem safnað er af smátölvum og skrifa eða stilla nauðsynleg forrit til þess eftir þörfum. Einnig kynnast nemendur hvernig hægt er að nota netþjónustur og tilbúinn búnað til að koma stýriboðum heimshorna á milli. Það sem kallað er Internet hlutana (Internet Of Things)
Þessi áfangi er samofin MEKV3RE05BR í Rafeindavélfræði (Mekatrónik 6) og miðast verkefni við það.
Þekkingarviðmið
- virkni forrita og samskipta forrita og vélbúnaða
- fylkjum og föllum í hugbúnaði
- samskiptum tölva og vélbúnaðar
- samskiptum við netþjónustur og búnað því tengdu
Leikniviðmið
- forrita í þriðja kynslóðar forritunarmáli
- beita mótaðri aðferð við gerð forrita (structured program design)
Hæfnisviðmið
- þróa forrit þar sem þekking á föllum og fylkjum er notuð til að stýra vélbúnaði og nota skynjara til að ákvarða viðbrögð.
- þróa forrit sem fær stýritölvu eins og PIC til að vinna fjölverkavinnslu (multi tasking)