FATA2SS05 - Fatasaumur
saumar, snið
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Þrep: 2
Nemendur læra að taka líkamsmál og lesa úr máltöflum. Lögð er áhersla á að þekkja helstu sniðhluta og gera einfaldar sniðbreytingar. Kennt er að leggja rétt á efni og reikna út efnisþörf. Nemendur læra á saumavél og möguleika hennar. Saumaðar eru prufur og einfaldar flíkur. Lögð er megináhersla á að fylgja verkinu eftir frá hugmynd að fullunnu verki og temji sér vönduð vinnubrögð. Vinnumappa er útbúin sem skal innihalda prufur og vinnulýsingar fyrir hvert verkefni.
Þekkingarviðmið
- hvernig líkamsmál eru tekin og borin saman við stærðartöflur
- hvernig efnisþörf er reiknuð út frá sniðum
- hvernig sniðhlutar eru lagðir á efni eftir þráðréttu og saumför teiknuð inn á efni
- saumtækni með prufusaumi t.d. rennilás, hnappagöt og ýmsar gerðir af vösum
Leikniviðmið
- taka líkamsmál og skilja stærðartöflur
- geta raðað sniðhlutum á efni eftir þráðréttu
- teikna saumför, falda og aðrar merkingu á efni áður en klippt er
- nota saumavélar og þekkja notagildi stillinga, saumavélarfóta og saumavélanála
- sauma einfaldar flíkur og saumtækniprufur
Hæfnisviðmið
- lesa úr máltöflum og aðlaga snið að mældum líkamsmálum
- meta og nýta sér viðeigandi búnað saumavélar eftir efnum og saumtækniaðferðum
- útskýra vinnuferlið frá hugmynd að fullunninni flík
- meta hvaða textílefni hentar flíkum eftir notagildi