LÍFS1US02(AV) - Lífsleikni með áherslu á skólabrag og samfélag
samfélag, samskipti, skólabragur, umgengni
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Þrep: 1
Markmið áfangans er að kynna nemandanum innviði skólans, námsval, starfshætti, nám og félagslíf. Nemandinn er búinn undir þátttöku í samfélaginu með því að efla félagslega færni og siðferðiskennd. Lögð er áhersla á að efla samskipti og jákvæða lífssýn nemandans sem auðveldar honum að takast á við kröfur og ögranir daglegs lífs. Jafnframt er lögð áhersla á að gera hann meðvitaðan um þá ábyrgð sem hann hefur gagnvart sjálfum sér og skólasamfélaginu. Í áfanganum er stuðlað að styrkingu félagstengsla milli nemenda og þeir búnir undir að takast á við krefjandi nám og leggja þannig grunn að frjóu menntasamfélagi. Nemandinn eflist í að koma fram af virðingu við aðra í fjölbreyttu þjóðfélagi. Nemandinn fær tækifæri til að vinna við margvísleg viðfangsefni á fjölbreyttan og skapandi hátt. Um er að ræða verkefnabundið nám með áherslu á samvinnu og frumkvæði.
Þekkingarviðmið
- kröfum sem gerðar eru í námi í framhaldskóla
- þýðingu þess að lifa í samfélagi við aðra
- framtíðarmöguleikum sínum
- mikilvægi markmiðasetningar og leiðum að settum markmiðum
- skólasamfélaginu, námsvali og stoðþjónustu
Leikniviðmið
- bera virðingu fyrir sjálfum sér
- sýna umburðarlyndi, samhyggð og virðingu fyrir öðrum
- tjá sig í töluðu og rituðu máli
- verða betur meðvitaður um sjálfan sig, áhugasvið sitt og styrkleika
- leita upplýsinga um nám sitt
Hæfnisviðmið
- auka færni sína í mannlegum samskiptum
- meta eigin vinnubrögð
- bæta ákvörðunartöku í daglegu lífi
- taka þátt í samfélagi sem er í sífelldri þróun
- bera ábyrgð á eigin námi