LÍFS1SV01 - Lífsleikni með áherslu á sjálfræði og virkni
sjálfræði og virkni í samfélaginu
Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Þrep: 1
Í áfanganum er leitast við að styrkja nemandann sem einstakling, námsmann og efla virkni hans í skólasamfélaginu. Lögð er áhersla á að styrkja samkennd nemanda, sjálfstraust og öryggiskennd hans innan og utan skóla. Unnið er með skólareglur, umgengni og námsvenjur. Unnið með mikilvægi þess að taka ábyrgð á sjálfum sér og eigin líðan og átta sig á réttindum og skyldum.
Unnið með það hvað felst í því að verða sjálfráða og virkur og ábyrgur þegn í samfélaginu.
Þekkingarviðmið
- mikilvægi sjálfstæðis og sjálfsábyrgðar í lýðræðissamfélagi
- að allir hafa hæfileika og þroskamöguleika
- mikilvægi þess að axla ábyrgð á sjálfum sér innan og utan skólasamfélagsins
- fjölbreytileika
- samræminu á milli réttinda og skyldna
- eigin tilfinningum og skoðunum
Leikniviðmið
- beita gagnrýninni hugsun
- virða skoðanir annarra
- skilja að öllum rétti fylgja skyldur
- taka þátt í umræðum
- láta skoðanir sínar í ljós
Hæfnisviðmið
- skilja mikilvægi þess að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum
- spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
- átta sig á tengingu á milli réttinda og skyldna
- taka þátt í lýðræðissamfélagi á virkan og ábyrgan hátt