HREY1GV01 - Íþróttir með áherslu á grunnþjálfun
Grunnáfangi verklegt
Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Þrep: 1
Í áfanganum fær nemandinn leiðsögn við að framkvæma æfingar sem styrkja líkamann. Nemandinn kynnist teygjuæfingum, göngu, æfingum í vatni, stöðvaþjálfun o.fl.. Lögð er áhersla á að nemandinn finni æfingar við sitt hæfi, njóti þess að stunda æfingar og finni fyrir jákvæðum áhrifum á heilsu sína.
Þekkingarviðmið
- mikilvægi þess að stunda æfingar
- að vellíðan getur fylgt æfingum
- að hægt er að njóta æfinga
- að líkaminn styrkist við að stunda æfingar
Leikniviðmið
- gera einfaldar teygjuæfingar
- ganga sér til heilsubótar
- gera æfingar í stöðvaþjálfun
Hæfnisviðmið
- taka þátt í æfingum sem henta eða benda á hvaða æfingar henta honum
- nýta sér ýmis tilboð á sviði hreyfingar s.s. sund, gönguferðir og stöðvaþjálfun
- stunda æfingar í vatni